M.C. Drullusokkar Stofnað 04.05.06.

Hvetjum félagsmenn til að senda inn myndir af sér og hjólunum sínum í félagaskrána.
Einnig ef þið eruð með skemmtilegar hjólamyndir, fréttir eða aðrar tilkynningar sem eiga heima hér.
[email protected]

Færslur: 2010 Maí

31.05.2010 22:19

Merki afhennt með viðhöfn








Símon #34, Tryggvi # 1 Jón Guðmundsson # 47, og Kjartan Ásmundsson # 117 gerðu sér dagsferð til Hvolsvallar til þess að afhenda Guðfinni Guðmannssyni mekið sitt, en það hefur verið draumur hans frá blautu barnsbeini að komast í Drullusokkana. Guðfinnur er einn af frumkvölunum af mótorhjóla peyjum eyjanna og þakkaði hann fyrir sig með því að slá til mikillar matarveislu þar sem æluklattar voru allsráðandi, en það er ekki hægt að sjá annað en að herlegheitin renni vel niður. Við bjóðum Nana velkominn í hinn fríða hóp drullusokka

31.05.2010 22:00

Jón, Stefán og Símon á ferð







Sælir Drullusokkar
Hér eru nokkrar myndir sem voru teknar voru helgina 22. maí þegar ég Jón, Stefán og Símon fórum smá ferð um Hvalfjörð með viðkomu á góðum stöðum. Við komum við í Borganesi og Baulu og enduðum í miðbæ Reykjavíkur. Ég (Jón) kom heim kl 3 um nóttina. þetta var æði það er munur að vera laus og liðugur á þessum aldri ha ha ha.Kv Jón


25.05.2010 14:13

Gúmmarinn Gúmmar Gúmmíinu








Vigga Gúmm finnst gaman að Gúmma

24.05.2010 23:49

Ferð um Kaldadal algjölega ófæran en farið samt




Okkur var sagt að leiðin um Kaldadal frá Húsafelli niður að Þingvöllum væri bara góð og ákváðum við að fara hana á Hvítasunnudag annað kom á daginn þessi leið var vægast sagt ófær en Low Riderinn ( fræsarinn) Vmaxinn og Warriorinn komust á leiðarenda eftir rúmlega þriggja stunda ökuferð yfir stórgríti og var vegurinn á köflum sundurgrafinn af vatni skoðum nokkrar myndir af þessu.



Það er fallegt á hálendinu



Stundum náðum við að hjóla meðfram vatninu en stórgrítt var það



Svo var bara að láta vaða



Siggi Óli á fleygi ferð



Fræsarinn komin yfir eina ánna



Það var bara að láta vaða en botninn var bara svo stórgríttur og munaði minstu að það færi illa þarna enda rétt búinn að missa Warriorinn á hliðina en það slapp







Svo þegar við komumst loks á leiðarenda og búnir að missa af Herjólfi að þá blasti þetta skilti við okkur en það hafði víst gleymst að setja svona skilti upp hinumegin þar sem ferðin okkar hófst



Svo var bara að brosa að þessu enda annað ekki hægt

13.05.2010 11:58

Fleiri Sokkahjól af sýninguni 2010




Hér er NSU Spezial Max 250 cc árg 1956 í eigu Reymonds D Davis, Leifs Ásgeirssonar  sokks #183



Hér er Suzuki GS 650 árg 1981 í eigu DR Bjössa sokks # 105



Hér er Honda CBX 1000 árgerð 1979 í eigu Gunnars Geirssonar sokks # 67 en þetta er eitt þriggja cbx hjóla sem flutt voru til landsins ný á sínum tíma en þeim hefur nú aldeilis fjölgað síðan þetta hjól átti í gamla daga Einar Sigþórsson Sokkur # 3 og var hjólið þá rautt



Hér er Kawasaki z 1000 árg 1978 í eigu Hauks Richardssonar sokks # 79 við höldum að Drullusokkar hafi aldeilis ekki þurft að skammast sín fyrir gripina sem þeir sýndu þarna enda hver gripur öðrum glæsilegri

08.05.2010 14:29

Jói rækja kom sá og sigraði




Jói rækja kom með mörg hjól frá Akureyri sem eru í eigu Mótorhólasafns Íslands.
Hér er hann á einu óuppgerðu sem er með húddi




Hér er Herkúles Wankel hjól



Hér er Triumph árg. 1928 með karbít lugt



 Triumph X 75 Hurricane 750 eftirsóttur safngripur



Zundapp hjól í eigu safnsins. Fleiri myndir frá sýningunnu eru í myndaalbúmi


08.05.2010 14:08

Burnout Sýninginn 2010




Hér er elsta hjól Islands Henderson árg, 1918 og eitt örrfárra sem til eru í heiminum í dag




Drullusokkar tóku virkan þátt í þessari sýningu og sýndu ein tíu hjól á fastalandinu og er það ekki oft sem hjól Eyjaskeggja eru sýnd þar



Yamaha V Max 1200 árg 1985 í eigu Hermans # 59



Hér er V Maxinn hans Hermans Haralds # 59



750 Hondan hans Darra árg 1971



900 Kawinn hans Darra árg 1973



Black Bomber Hondan 450 árg 1967 í eigu Sokks # 1



BSA Spitfire 650 árg 1968 í eigu sokks # 1



Hondan 750 sokks # 1 árg 1974



Ariel Square four  1000 cc árg 1947 fjögura cylindra í eigu Bigga # 5



Honda GL 1000 Gold Wing árgerð 1978 í eigu sokks # 1



Honda SS 50 árg 1974 í eigu Darra



Hér að ofan eru hjól Drullusokka sem sýnd voru og komumst við bara vel frá þessu 

03.05.2010 17:37

M.C. HANN




Halló
Ég heiti Óli og er í smá mótorhjólafélagsskap sem kallar sig M.C HANN.
Þetta eru strákar og stelpur á allskyns hjólum, frá Magna 1100 1984 til Hayabusa 2005
Við erum að koma 9 saman á hjólum til Vestamannaeyja 11. Júní, við erum búin að leigja okkur íbúð sem við verðum í þarna. Okkur datt í hug hvort einhverjir í ykkar hóp hefðuð áhuga á að hitta okkur á laugardeginum og kannski hjóla með okkur um Eyjarnar og eða sýna okkur eitthvað af þessum glæsilegu hjólum sem eru á myndasíðunni ykkar.

 Kv. Óli Jóns 820-0822



  • 1
Flettingar í dag: 637
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 1972
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 1407807
Samtals gestir: 86197
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 20:34:34