M.C. Drullusokkar Stofnað 04.05.06.

Hvetjum félagsmenn til að senda inn myndir af sér og hjólunum sínum í félagaskrána.
Einnig ef þið eruð með skemmtilegar hjólamyndir, fréttir eða aðrar tilkynningar sem eiga heima hér.
[email protected]

16.07.2012 20:34

Þrautabraut á hjóladögum 2010

Hér er sigurvegarinn í keppninni 2010.

16.07.2012 07:40

Um helgina nýliðnu.




Stebbi Jóns heimsótti Eyjarnar um helgina og hengdum við að sjálfsögðu nælu á kallinn.



Sko hann Stebbi var mótorhjólamaður þegar ég var á Honda 50 og það er sko langt síðan og aldrei slittnaði ferillinn hans Stefáns og ef naðran bilaði hjá manni þá reddaði Stebbi því ekki málið sagði hann.





 Þessir byrjuðu allir að hjóla fyrir meira en 40 árum síðan.En samt svona ungir......skrítið.




Það er aldeilis búin að vera brakandi blíðan ekki bara síðustu viku heldur vikur.

15.07.2012 12:39

Syllukallarnir í Drullusokkunum


Flestir muna eftir Prúðuleikurunum úr sjónvarpinu í den en þar voru ofarlega Syllukallarnir sem sátu í stúku og tuðuðu svona í gríni um sýninguna. Nú eru drullusokkar búnir að eignast sína eigin syllukalla en kíkjum aðeins á þetta nánar.



Hérna eru kvikindin.



Og hérna eru syllukallarnir á sylluni þessir orginal.



Hér eru svo syllukallarnir okkar Drullusokka, Biggi og Gilli báðir flottir og standa ávalt þétt saman á móti formanninum. Það skal skýrt tekið fram að þetta er allt í góðu enda bara gaman að vera til.

15.07.2012 00:50

Úti í London vorið 1981




Hér eru Helena X1, Addi bróðir, Einar Sigþórs og Tjalli fyrir utan fræga búð í London sem seldi allt milli himins og jarðar í mótorhjól sem voru jú lífið á þessum árum.



Hér erum við svo, Ég, Einar og Addi vel mettir eftir að hafa verslað í Big Bike búðini, svo þegar við komum þarna aftur árið 1983 þá var búið að loka sjoppuni og veröldin hrundi enda lítill heimurinn hjá guttunum.


13.07.2012 20:16

Fleiri myndir á ferð.


Það er gaman af þessum myndum sem teknar eru á ferð, hér koma nokkrar sem að Sindri Georgs tók í lok síðasta sumars.




11.07.2012 18:31

Siggi Árni á Harley hjólinu sínu.




Hér er mynd sem Jón Högni hennar Stefaníu # 200 sendi okkur af Sigga Árna # 6 þegar hann átti Harley Davidson hjólið. flott mynd svona tekin á ferðini.

11.07.2012 12:27

Steini kokkur prufar Hondu cb 500




Hér sjáum við Steinar Ágústsson eða Steina kokk, Steini var nú aldrei neinn mótorhjólamaður en brá á leik fyrir utan skýlið á fimmtudeginum fyrir þjóðhátíð árið 1980. Það lá vel á kalli enda eitt alsherjar fillirí framundan hjá Steina en kallinn var eins og Njáll á Bergþórshvoli honum óx ekki skegg.

10.07.2012 18:47

Frá síðasta fimmtudagsfundi

Það voru nokkrir sokkar sem hittust síðastliðið fimmtudagskvöld þar sem nýju drullusokkanælurnar voru frumsýndar.

Málin rædd

Eyþór mætti á Busuni sem hann keypti nýlega, glæsileg græja hjá Eyþóri.

Fiddi að fara (samt ekki í fýlu)

Gylfi #14 mætti og fékk þetta glæsilega heiðursmerki.

Merkið kemur flott út.

Busa.....

CB750 1971

10.07.2012 14:36

Smá upprifjun fyrir Akureyri 2012




Þessi er tekin fyrir utan Staðarskála í Hrútafirði árið 1976 þarna eru frændurnir Steini Tótu og Tryggvi Bacon báðir óku þeir um á 750 Hondum en í miðjuna er 500 Hondan hans Einars Arnars á Brekku.



Þessi var tekin í Skagafirði og vegirnir æði á þessum árum rik skítur og drulla og nóg af því, þeir hefðu nú verið ánægðir með þetta enduró gaurarnir heima í Eyjum í dag. En við hinir vorum þolinmóðir og biðum eftir malbikinu til að hjóla á og það með stórt smæl á smettinu.



Þarna er gamla 750 Hondan sem undirritaður átti á árunum 1975- 1979. En þetta hjól er enn til og er í Reyjavík í dag.



Á þessum árum var ferðast með tjöld svefnpoka og alles.

08.07.2012 20:46

Bergur Guðna á nýja hjólinu.

Bergur skipti um hjól á dögunum, hann átti áður Honda VT 750 sem hann setti uppí þennan Suzuki Intruder 1800.

Þessi græja er fullorðins enda 1050cc stærra en gamla hjólið.

07.07.2012 10:59

Smá rest úr síðustu ferð.

 

Nú fara myndirnar úr síðustu ferð okkar Drullusokka á Snæfellsnes að vera uppunrnar, enda eins gott því það líður að næstu og stærðstu ferð okkar á árinu sem við ætlum að leggja í þann 19 júli og er meinigin að fara til Akueryrar og dvelja þar í þrjár nætur og þvælast eitthvað um nágrannasveitirnar, Þann hátturinn verður nú á að hver sér um sína gistingu, en þegar eru komnir einir átta manns í þessa ferð allir með gistingu og vonandi höfum við bara gaman af því að hitta vini okkar fyrir norðan. En nánar um þessa ferð síðar svo og samför okkar og vinaklúbbs okkar  Gaflara, en þar er um að ræða dagsferð seinnipartinn í ágúst en svoleiðis ferð var farin í fyrra og tókst hún þrælvel í alla staði.
 














Við funndum Völlu á Hellisandi og þá var gaman hjá Bigga eftir svipnum á honum að dæma.



Hér er Siggi Árni að telja á puttum annarar handar hve marga pabba hann átti í ferðini.



Heyrðu jú þið eruð tveir.



Já svona getur lífið stundum verið skrítið.

05.07.2012 11:57

Barmmerki Drullusokka komin í hús.


Okkur voru að berast þessi líka flottu Drullusokka merki sem næld eru í jakka.
merkin eru til sölu og kostar stykkið aðeins 1500 kr.




Hér er fyrsta merkið afhennt Jenna Rauða en hann er frumhvöðull og á heiður skilið fyrir framtakið.



Hérna Jenni minn segir formaðurinn og gjalkerinn fylgist vel með.



Eins og sjá má að þá eru þetta vönduð merki og drullusokkar geta verið stoltir af að bera þetta á jakkanum sínum.



Það eru fínar og traustar festingar á merkjunum. Merkin eru til sölu hjá formanni sokka í síma 8963429. eða á email [email protected]

03.07.2012 08:15

Meira af ferðinni..


Beðið á Kaffi59 á meðan Doctorinn var dreginn í land á Grundarfirði.

Saga fyrir alla, sögumiðstöðin á Grundarfirði. Hér er sögumaður nr1. búinn að finna job við hæfi.

Fyrir utan hótelið á Grundarfirði

Hér er svo hann Sverrir ljósmyndari hjá Skessuhorni, hann myndaði okkur fyrir utan hótelið.

Stykkishólmur.
Flettingar í dag: 690
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 805
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 1413996
Samtals gestir: 86355
Tölur uppfærðar: 24.11.2024 10:59:33