M.C. Drullusokkar Stofnað 04.05.06.

Hvetjum félagsmenn til að senda inn myndir af sér og hjólunum sínum í félagaskrána.
Einnig ef þið eruð með skemmtilegar hjólamyndir, fréttir eða aðrar tilkynningar sem eiga heima hér.
[email protected]

04.01.2017 01:25

Uppgerð


Að gera upp hjól í  Vestmannaeyjum er ekkert grín,þú kaupir hjól og öllum vantar hluti úr því,og ég lenti í því að aðal sugur bæjarinns þurftu hluti úr mínu hjóli.Svona byrjaði þetta.

Fínasta hjól en dauðadæmt,fyrst kom Darri,mig vantar smá,

svo komTryggvi og hann tók Jenna hjálparmann með sér til að bera allt dótið í burtu sem þeim vantaði.

En ég plataði þá og átti nóg í hjól handa mér,uppgerð er hér með lokið.

Útkomann er glæsileg gæti ekki verið sáttari.Kveðja Siggi Óli

14.12.2016 08:47

Myndir frá jólahittingnum.

Síðastliðið föstudagskvöld hittust Drullusokkar á Skipasandi.
Allt fór vel fram, nema að bjórinn kláraðist ekki, sem verður að teljast léleg frammistaða.










05.12.2016 22:51

Jólahittingur Drullusokka



Jólahittingur drullusokka verður haldinn í skúrnum hjá Darra á Skipasandi næsta föstudagskvöld. 09.12.16 Skúrinn opnar kl 19:30.
Pizza & öl á boðstólnum.
Við vonumst til að sjá sem flesta, gott skap og bullgír æskilegur. Maggi Valgeirs verður með uppistand á Skype.

29.11.2016 05:45

10 ára


                                           Afmælissýning Drullusokka 2016

27.09.2016 20:02

                                            Þverhausar

24.09.2016 21:08

Þverhausar


         Hjörtur á Selfossi bauð Þverhausum í kaffi í sumar og fengum við nokkrir að fljóta með.



Sæmilegt safn af hjólum sem karlinn á og ekki allt komið. Meira seinna.




12.09.2016 23:28

Aðalfundurinn



Aðalfundurinn fór vel fram um helgina.
á laugardagsmorgunin komu nokkrir hjólarar frá Marel í heimsókn á eyjuna, þeir fóru með okkur hópkeyrsluna og sötruðu kaffi með okkur Drullusokkum, fóru svo til baka seinni partinn.
Brottför í hópkeyrsluna seinkaði töluvert, en Nr.1. lánaði tvö hjól og ætlaði á einu sjálfur, sem ætti ekki að vera mikið mál fyrir mann sem er með fjögur hjól í kotinu sínu og er nú þekktur fyrir að gefa fákunum slatta af sínum tíma,,,,,, en,,,,, eitt var vindlaust, annað var bensínlaust, það þriðja var rafmagnslaust og það fjórða vélarlaust,, eftir þetta fundu menn út að Nr.1. þarf að fara slaka aðeins á í vinnunni og sinna hjólunum betur.
Það voru 24 hjól á rúntinum í þrusu flottu veðri.
Næst var komið að fundinum, og var hann haldinn í bilinu hans Darra á Skipasandi. Farið var yfir mál líðandi sokkaárs, ársskýrsla kynnt og kosið í nýja stjórn þar sem sitjandi stjórn gaf ekki kost á sér.... Það fór þannig að enginn bauð sig fram og því ákvað sitjandi stjórn að halda áfram.
  • Darri - formaður
  • Bryndís - varaformaður
  • Siggi Óli - gjaldkeri
  • Sæþór
  • Hermann
  • Daddi
  • Tryggvi

Einnig voru teknir inn 6 nýliðar

  • Guðjón Egilsson #110
  • Erling Þór Gylfason #74
  • Valur Stefánsson #87
  • Hörður Guðmundsson #104
  • Gunnar Tryggvi Ómarsson #42
  • Doddi smiður #162

Svo var fírað uppí grillunum, þar sem Darri og Siggi Óli grilluðu lærin af stakri snilld, Jenni og Sigga sáu um sósu og kartöflur, svo var salat og allskyns drykkjarvara á boðstólnum, flott máltíð það.

Fólk tók svo misvel á því fram eftir nóttu, en frábær dagur,, takk fyrir Drullusokkar.













08.09.2016 08:10

AÐALFUNDURINN

Nú eru flestir sokkar að verða klárir fyrir átök helgarinnar, Fundurinn verður haldinn á Skipasandi í húsinu hans Darra,, ekki í Bragganum eins og áður var auglýst..Ljóst er að meirihluti stjórnarinnar mun ekki gefa kost á sér aftur, þannig að við verðum að skrapa saman í nýja stjórn.

  • KL 16:00  Hittingur á hjólum á Skipasandi
  • Kl 16:15   Hópkeyrsla um bæinn með tilheyrandi spjallstoppum
  • Kl 18:00   Fundur settur í húsinu hans Darra á Skipasandi
  • Kl 19:00   Kveikt uppí grillinu
  • Maturinn verður svo borinn fram þegar hann verður tilbúinn,sennilega um Kl 20.

Spáin er með okkur í liði,, sem er gott...

Stuð og stemmari.

Sjáumst um helgina.

Flettingar í dag: 637
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 1972
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 1407807
Samtals gestir: 86197
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 20:34:34