M.C. Drullusokkar Stofnað 04.05.06.

Hvetjum félagsmenn til að senda inn myndir af sér og hjólunum sínum í félagaskrána.
Einnig ef þið eruð með skemmtilegar hjólamyndir, fréttir eða aðrar tilkynningar sem eiga heima hér.
[email protected]

21.03.2013 22:18

Fast Freddie


Freddie Spencer er fæddur það merka ár 1961. Hann er einn af þessum kappaksturs goðsögnum, sem var uppá sitt besta á milli 1980 og 1990.
Þrefaldur heimsmeistari, hann byrjaði að keppa í 500Gp-inu 1982 og vann sína fyrstu keppni það árið og varð yngsti ökumaður sögunar til að vinna mót í þeirri seríu, strax árið eftir varð hann svo fyrst heimsmeistari. En áður en hann fór í Gp-ið keppti hann í ameríska superbike-inu á CB900 Hondu, hér er smá klippa úr heimildarmynd um kappann og sést hann þá í superbike-inu, greinilega einn af frumkvöðlum nútíma mótorhjólakappaksturs og í restina á klippunni er hrikalega töff skot af honum á 900 Hondunni, þvílíkt sánd í græjunni.

18.03.2013 10:54

Súperinn flottur að vanda.




Hér er ein frá árinu 1985 og situr Stefán Guðmundsson eða Stebbi súper á 900 Kawanum mínum þarna aftan við hann má sjá gamla lögguhjólið frá Akureyri Motor Gussi 850 cc. hjólið til hægri er Yamaha en er ekki viss hve stórt það er.

15.03.2013 10:07

Fyrsta Honda mótorhjólið sem kom til eyja.




Hér er ein mynd frá Ragga Jóns af fyrstu Honduni sem kom hingað myndin er að vísu tekin norður í landi en Raggi var með hjólið um tíma á Húsavík, og þar smituðust nokkrir ungir drengir af mótorhjólabakteríuni. Hondan var af árg 1962 eða 1963 og hét C 92 en mótorinn var tveggja strokka og var 125 cc

13.03.2013 11:32

CB 750 árg 1968.






Hér eru tvær myndir af prótótypum af Honda cb 750 en þessar eru frá árinu 1968 eða ári áður en Honda setti hjólið á almennan markað.

12.03.2013 20:01

Diavel Cromo Vs. V-Max

Flott samanburðarvideo af alvöru Muscle-hjólum. Þau eiga það sameiginlegt að vera stór, þung, með virkilega sérstakt útlit og sudda power.

11.03.2013 19:44

Til sölu

Yamaha Midnight Star 1300,
árg. 2007,
keyrt 4400 km,
verð 1200 þús.
Möguleg skipti en ekki á hippa eða racer.

Nánari upplýsiningar: [email protected]




08.03.2013 15:23

Gamall sokkur á spítalanum.




Hér er ein mótorhjólamynd, nei nei bíðið aðeins þetta er maður á sextugsaldri sem settist á mótorfák og fraus fastur á gjöfini negldi græjuna í botn og smurði barasta beint á hausinn. Kallinn er allur lurkum laminn eftir þessa miklu svaðilför. Það hefur löngum verið vitað að mótorhjól eru ekki fyrir gamla menn en það er lengi búið að blunda í þessum öldungi að fá að prufa svona grip eða alveg síðan hann var lítill villingur á vesturveginum. En allur er varinn góður og með hjálp vina og kunningja að þá stendur til að prufa aftur hvort sá gamli getur þetta yfir höfuð, og nú skal vanda til verka fyrir næstu ferð. En heyrst hefur að Halldór Waagfjörð vélstjóri á Herjólfi standi sveittur á smíðaverkstæðinu um borð ( Þótt það sé bræla )  og er hann að smíða festingar á Honda Dax nöðru eina en þessar festingar verða síðan notaðar fyrir tvö hjálpardekk á Daxinn svo gamli slæti nú ekki barasta beint á hausinn aftur enda var kvikindið vel ruglað fyrir síðustu byltu svo hvernig væri hann þá eftir aðra svipaða, ja drottinn minn dýri.

08.03.2013 11:17

750 Nortoninn sá eini hérlendis.




Hér erum við félagarnir Biggi ég og Gilli heitinn þegar við sendum Norton hjólið hans Gilla upp á land en þá var hann nýbúinn að selja Óla bruna það.



Hér er svo sami Norton eftir að Óli fór um hann höndum en Óli hefur brennandi áhuga á þessum síðustu tíma alvöru breta hjólum enda maðurinn brunavörður með meiru. En til hamingju með hjólið Óli minn og þetta er stórglæsilegt hjá þér. Þú leifir mér kanski að taka eitt slide á því enda vanur maður í því djobbi.

07.03.2013 20:56

Hér er góður linkur........

Stundum kæmi þetta sér vel.

07.03.2013 16:00

Nú er frost á fróni.




Hér er ein sem hæfir vel veðráttuni hjá okkur þessa dagana. Hann þarf nú að hita vel dekkin þessi til að fá smá veggrip eins og sumir hefðu kanski átt að gera líka en það er annað mál.

06.03.2013 19:40

Aðal mótorhjólagæinn á Breiðdalsvík..




Munið þið eftir þessum ? Jú þetta er hann Snjólfur aðal mótorhjólagæjinn á Breiðdalsvík Snjólfur var og er vonandi enn flottur fír tengdasonur Tóta heitins í Turninum. Snólfur skoraði á Sokk eitt í spyrnu en sokkur eitt þorði ekki þá bauð Snjólfur fram eina millu í verðlaun sem sigurvegari spyrnunar fengi í sigurlaun, lagði hann fram ávísun upp á eina miljón þessu til staðfestingar en hún var útgefin af Búnaðarbankanum sáluga og undirrituð af Finni Ingólfssyni og sagði Snjólfur að hún væri pottþéttur pappír, En sokkur eitt þorði samt ekki í Snjólf á ofurgræjuni. En nú er eftir rúsínan í pylsuendanum sem kemur undir næstu mynd.



Hér er vélarsalurinn hjá Snjólfi en eitt vandamál var varðandi gripinn hann vildi ekki í gang og komst Snjólfur að því að græjan var bensínlaus með öllu svo hann plataði Dadda trukk til að lána sér fyrir eins og einni áfyllingu á tankann og gerði Daddi það með smá fílusvip enda kostaði áfyllingin hátt í 500 krónur. Eftir að gripurinn var kominn í gang sagði hann við Dadda "Hann malar fínt finst þér ekki vinur " síðan botnaði hann í burtu með glott á vör og Daddi ræfillinn hefur ekkert frétt af aurunum sínum þótt liðin séu tvö ár síðan.

04.03.2013 20:57

Enn meira grams


Hverjir eru mennirnir ?

Fimmtudagurinn fyrir þjóðhátíð 2009 eða 2010.

Sigurjón Andrésar á 1100 Súkkunni.

Ein góð af Geira heitnum.

04.03.2013 20:38

71° 10´ 21" N, 25° 47´ 40" E

Nojararnir kunna þetta, ekkert verið að bíða endalaust eftir vorinu.
Gauji Engilberts sendi okkur þessar.

Triumph,,, hvað annað.

Á nöglum............

Og skíðum...............

Hversu mikil snilld.
Flettingar í dag: 565
Gestir í dag: 25
Flettingar í gær: 1972
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 1407735
Samtals gestir: 86195
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 20:13:21