M.C. Drullusokkar Stofnað 04.05.06.

Hvetjum félagsmenn til að senda inn myndir af sér og hjólunum sínum í félagaskrána.
Einnig ef þið eruð með skemmtilegar hjólamyndir, fréttir eða aðrar tilkynningar sem eiga heima hér.
[email protected]

08.11.2011 20:32

Úr okkar ferð árið 1987

  Hér eru nokkrar myndir úr okkar ferð sem farin var vorið 1987 en þessar myndir eru teknar á bryggjuni í Grindavík.Einar Sigþórs er þarna á nýrri Hondu CBR 1000 en við Darri erum á gömlu 900 köttlunum okkar. Það er svolítið skrítið þegar þessar myndir eru skoðaðar nú tæpum 25 árum síðar að þá erum við Einar báðir löngu búnir að losa okkur við hjólin á myndunum og reyndar konurnar líka en Darri heldur öllu sínu bæði hjóli og konu. Svona getur lífið stundum verið skrítið.









Hér er svo Darri búinn að taka konuna frá mér aftan á hjá sér og svo hirti hann hjólið seinna. Og eftir stóð ég bara með Leu gömlu sem hann reyndar tók enn síðar.

Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 2002
Gestir í gær: 194
Samtals flettingar: 869755
Samtals gestir: 63444
Tölur uppfærðar: 20.5.2024 00:01:55