M.C. Drullusokkar Stofnað 04.05.06.

Hvetjum félagsmenn til að senda inn myndir af sér og hjólunum sínum í félagaskrána.
Einnig ef þið eruð með skemmtilegar hjólamyndir, fréttir eða aðrar tilkynningar sem eiga heima hér.
[email protected]

17.02.2011 15:22

Fundur um öryggismál

Helgina 1.-2. apríl munu Bifhjólasamtök Lýðveldisins, Sniglar, halda málþing um öryggi og aðstæður bifhjólafólks á Íslandi í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Á föstudeginum verður lokaður fundur um áherslumál og hagsmuni hjólafólks og á laugardeginum málþing opið öllum.

Á föstudeginum verður málþingið með þjóðfundarsniði og verða þrjú umræðuefni, ímynd bifhjólafólks, hagsmunir bifhjólafólks og núllsýn í umferðinni.
Vegna takmarkaðs húsrýmis verðum við að miða fjölda fundargesta við 110 manns á þessum þjóðfundarhluta málþingsins. Til að tryggja að raddir allra hópa bifhjólafólks heyrist á fundinum viljum við því biðja hvern klúbb um að tilnefna 1-2 fulltrúa á þjóðfundinn. ATH, ef fleiri en 110 verða tilnefndir gildir fyrstur kemur, fyrstur fær.

Hefur einhver áhuga á að sitja þennan fund fyrir okkar hönd??

Flettingar í dag: 1190
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 884
Gestir í gær: 34
Samtals flettingar: 1409244
Samtals gestir: 86230
Tölur uppfærðar: 22.11.2024 02:57:32